Skýrslan „Stuðlar um afhendingu raforku. Árin 2004-2013“ er komin út, en þar eru birtar stuðlar um afhendingu raforku til notkunar hér á landi auk þess sem gildi fyrir þessa stuðla síðustu tíu ár eru reiknuð fyrir Landsnet og stærstu dreifiveitur landsins.
Eins og fram kemur á myndinni hefur árið 2013 verið frekar gott hjá veitunum. Stuðlarnir hjá Norðurorku byggja á mjög fáum truflunum, svo hlutfallslegar breytingar geta verið verulegar á milli ára. Hjá öllum veitunum hafa flestir stuðlar verið lægri en undanfarin ár. Stuðlarnir TSF, TSN og FSN eru ekki reiknaðir fyrir Landsnet og koma því ekki fram á myndinni.